Lestur er bestur fór fram dagana 2. maí til 20. maí. Þá tók við seinasta lesfimipróf skólaársins 23.-25. maí. Verkefnið var að taka skipulagt lestrarátak í lesfimi í samvinnu við lestrarþjálfara (foreldrar) og sjá hversu mikil áhrif slík þjálfun hafði […]
Lausar stöður skólaárið 2022-2023
Tálknafjarðarskóli auglýsir lausar stöður við skólann Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli undir einu þaki. Í skólanum eru um 50 nemendur. Í skólanum fer fram öflugt og framsækið skólastarf þar sem lögð er áhersla á að koma til móts við […]
Tendrað á jólatrénu á Tálknafirði
Nemendum í Tálknafjarðarskóla var boðið af Ólafi sveitarstjóra Tálknafjarðarhrepps til þess að vera viðstödd þegar kveikt yrði á jólatrénu í bænum. Vegna ástandsins í þjóðfélaginu er ekki hægt að halda í þá hefð að allir bæjarbúar komi saman á þennan […]
Skólastefna Tálknafjarðarhrepps tilbúin til birtingar
Skólastefna Tálknafjarðarhrepps var samþykkt á fundi sveitarstjórnar í október 2020 og hafði áður verið staðfest af Fræðslu-, menningar-, íþrótta- og æskulýðsnefnd. Stefnan er afrakstur vinnu nemenda, foreldra, starfsfólks Tálknafjarðarskóla, sveitarstjórnarfulltrúa og íbúa Tálknafjarðarhrepps undir handleiðslu Tröppu skólaþjónustu. Stefnan verður höfð […]
Alþjóðadagur kennara
Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur um heim allan í dag 5. október. Stofnað var til Alþjóðadags kennara að frumkvæði UNESCO og Alþjóðasamtaka kennara (Education International) árið 1994. Markmiðið með deginum hefur ávallt verið að vekja athygli á því mikilvæga starfi sem kennarar […]
Starfsþróun í Tálknafjarðarskóla
Starfsþróun er mikilvægur hlekkur í faglegu lærdómssamfélagi og stuðlar að aukinni þekkingu og færni starfsfólks auk þess sem það eykur starfsánægju. Hver starfsmaður ber ábyrgð á því að viðhalda færni sinni en það er einnig á ábyrgð skólastjóra að bjóða […]
Spennandi tímar í Tálknafjarðarskóla
Nýtt skólaár er hafið með fullum krafti og gaman að fylgjast með fjölbreyttu starfi skólans. Á þessu skólaári höfum við fengið þrjá nýja starfsmenn til okkar og fögnum við því. Daníel Perez Eðvarðsson er nýútskrifaður listgreinakennari og hefur umsjón með […]
Skólasetning Tálknafjarðarskóla 2020
Skólasetning grunnskólahluta Tálknafjarðarskóla fór fram fimmtudaginn 20. ágúst síðastliðinn í sal skólans. Vel var mætt og gildandi sóttvarnarreglum fylgt við framkvæmd skólasetningar. Eftir skólasetningu tók Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps til máls og óskaði öllum til hamingju með nýtt og […]
Úthlutun frá Forriturum framtíðarinnar
Innilega til hamingju! Það gleður okkur að tilkynna að skólinn þinn hefur hlotið styrk úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar. Í ár styrkir sjóðurinn 28 skóla um sem nemur 9 milljónum króna. Styrkur skiptast í tvo meginflokka, annars vegar um 1,5 milljón […]
Skólaslit 2020
Skólaslit Tálknafjarðarskóla fóru fram föstudaginn 29. maí síðastliðinn í Tálknafjarðarkirkju. Það er alltaf jafn gaman að sjá nemendur mæta prúðbúna með foreldrum sínum á slíka athöfn. Í ár útskrifuðum við forskólahópinn okkar á leikskólanum og voru útskriftarnemendur þessir: Hrafney Fjölnisdóttir […]
Nemendur söfnuðu yfir 100.000 kr fyrir UNICEF
Seinasti kennsludagur grunnskólans var fimmtudaginn 28. maí og þann dag tóku nemendur skólans þátt í UNICEF-hreyfingunni. UNICEF-hreyfingin hæfir öllum börnum, jafnt stórum sem smáum. Verkefnið samræmist grunnþáttum námsskrár um heilbrigði, velferð, lýðræði, mannréttindi og jafnrétti. Börnin sem taka þátt í […]
Fjöruhreinsun
Grunnskólanemendur Tálknafjarðarskóla tóku að sér fjöruhreinsun fyrir Arnarlax í vikunni og stóðu sig virkilega vel. Nemendur hreinsuðu fjöruna frá Hrauni að Felli. Alls hreinsuðu nemendur samtals 200 kg af rusli. Virkilega vel af sér vikið. Hreinsun fjöru er hluti af […]
Þróunarverkefni skólans fékk styrk úr Barnamenningarsjóði
Úthlutun Barnamenningarsjóðs Íslands fór fram í gær, á degi Barnsins, í Hörpunni og var verkefni Tálknafjarðarskóla eitt af þeim 41 verkefni sem hlaut styrk úr sjóðnum í ár. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra fluttu ávörp við […]
Plokkdagurinn 2020
Stóri plokkdagurinn var dagsettur 25. apríl en vegna ástandsins í samfélaginu ákváðum við í skólanum að fresta deginum. Á þessum degi eru allir hvattir til þess að fara út og plokka eða týna rusl í sínu nærumhverfi. Það er […]